15 maí 2007
Vor í lofti
Ég er ekki frá því að það sé loksins farið að vora. Ég var allavega í vorverkunum í garðinum hjá mér um helgina. Og þar sem vorið er komið, ætti þá ekki að vera að hægjast eitthvað á hjá kennslukonum...? Mig er allavega farið að langa í smá hitting! En ykkur?
20 febrúar 2007
Liggja kennslukonur í vetrardvala......
eða hvað? Tja, þegar stórt er spurt er fátt um svör :)
Ákvað að henda hér inn færslu til að sanna tilvist mína og að ég ligg ekki í vetrardvala....meira svona rigningardvala hehe ;)
Hitti Sigrúnu á flugvellinum þegar ég var á leið út eftir átmikið jólafrí á Fróni, skemmtileg tilviljun það :) Því miður náði ég ekki að spjalla mikið við hana þar sem ég þurfti auðvitað að troða mér í check in röðina áður en hallærislegir Ameríkanarnir fylltu röðina ;)
Nú fer að líða að vori og senn líður að námslokum. Er á fullu að undirbúa mína mestu kynningu fyrr og síðar....kynning á því sem ég lærði í náminu fyrir framan alla prófessora deildarinnar og samnemendur, gúlp!!! En eftir það er þessu nánast lokið. Eitt og annað hefur maður lært, sumt nýtt en annað gamalt.....sumt bara gamalt á nýjum grunni hehe ;)
Útskrift í lok maí....mín deild auðvitað á besta tíma dags, klukkan hálfníu um morgun!!! Ohh svo indælt. Eftir það er það bara Ísland, fagra Ísland og elskulegt íslenskt skólakerfi. Líst ekki alveg á stöðuna í kjaramálum kennara...les ályktanir kennara hér og þar og virðist stefna í launabaráttu og deilu...vona svo sannarlega að það leysist nú sem fyrst :)
Skora ég nú á kennslukonur að svipta sig vetrarhamnum og rísa úr dvalanum :)
Kv. Sigga Rós
P.S. Kolla, hvaða leyndó er þetta eiginlega...maður situr spenntur og fær engin svör ;)

04 október 2006
Dagur kennara!
Stelpur, Alþjóðadagur kennara á morgun.......Til hamingju með daginn :)
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1227029
Á ekki að halda hann hátíðlegan....ég mun marsera um UBC campus og syngja óð til heiðurs ykkur! Spurning um að gera það samt bara í hljóði hehe.

28 september 2006
Fréttayfirlit
Sælar lömbin mín!
Verður maður ekki að setja hér inn smá orð, svona rétt til að halda síðunni gangandi hehe.
Allt gott að frétta af mér héðan. Skólinn á fullu með sínum indælisverkefnum, ljúfum lestri og ritgerðaskilum. Samt er þetta nú öðruvísi núna því ég er með endinn í nánd. Get nánast séð í rassinn á lokum námsins sem og í tærnar skuldadögum námslána jæks!!! En annars er þetta bara nokkuð spennandi, margt nýtt og fróðlegt og líka margt sem er nýtt en ekki svo fróðlegt hehe. Þið vitið hvernig þetta er, ekki satt ;)
En hvernig gengur hjá ykkur hinum. Hvernig gengur í námi, leik og störfum?
Hlakka til að hitta ykkur um jólin, er með þörf fyrir íslenskar kennslukonur....þessar kanadísku eru fullmikið fyrir mig hihihihi.
Kveða, Sigga Rós

25 september 2006
Loksins, loksins...
Jæja stelpur, þá er loksins komið að því! Langþráður hittingur hefur verið ákveðinn föstudaginn 6. október hjá mér í höfuðborginni. Allar að mæta! Nánari upplýsingar síðar.
08 september 2006
Veiii hér er líf
Jibbí jei segi ég bara :) Var farin að halda að kennslukonur hefðu lagst langan sumardvala ;)
Kolla til hamingju með húsapuðið, hlakka til að sjá árangur erfiðisins :)
Kv.SRS

Is there anyone out there...?
Hvað segiði stelpur? Allar á lífi?
Long time no see... Er ekkert að gerast með hitting?

12 júní 2006
Saumó - samó - saumó
Sælar stelpur
Ég er ekkert búin að gleyma saumó. Gulla er í Þýskalandi og kemur heim á morgun. Boða í saumó um leið og ég heyri í henni. Kannski það verði bara um næstu helgi áður en Sigga verður búin að tapa sér í undirbúningi he he.
Kveðja Kolbrún Vil.