25 október 2005

 

Í tilefni dagsins... í gær...

Ég fékk ansi skemmtilegan póst í gær, læt hann flakka hér...

Nú skulum við standa saman!

Ásamt því að sækja um launahækkun eru íslenskar konur hvattar til að:

* Sofa yfir sig.
* Fara í sömu nærföt og í gær.
* Pissa á setuna - og útfyrir, ef tími vinnst til.
* Mála sig ekki - og alls ekki raka.
* Mæta of seint í vinnuna - sparka í stimpilklukkuna.
* Fara strax í kaffi - kvarta yfir því að það sé
a) of kalt b) of sterkt c) of svart.
* Prumpa.
* Reyna við undirmennina - eða bara klípa þá í tippið.
* Fara of snemma heim - biðja næturvörðinn að stimpla sig út.
* Flauta á alla karla í umferðinni og senda þeim fingurinn -
eða ulla.
* Gleyma að sækja börnin á leikskólann.
* Setjast fyrir framan sjónvarpið um leið og komið er heim.
* Fá sér bjór.
* Urra - jafnvel bíta - ef einhver spyr eftir kvöldmat.
* Ropa.
* Sofna yfir Idol.
* Fá sér bjór.
* Leggjast í öllum fötunum í rúmið og helst strá yfir það brauð- eða
kexmylsnu.
* Sofna áður en makinn nær að bursta tennurnar.
* Hrjóta.


Já, og samkvæmt þessu þá mótmæli ég kröftuglega á hverjum degi!

23 október 2005

 
Ja profid segid thid hmmmmmm!!!!! Gekk nu ekkert of vel i thvi! Atti i sma erfidleikum med ad skilja nokkrar spurningarnar og hmmm reyndi bara ad thyda thad eftir bestu getu og skella einhverju rugli a blad hehe. Svo var lika mjog svo skemmtileg rannsoknargrein sem atti ad lesa og greina i einhverjar oreindir! Uff hlakka nu ekki til ad fa utur thessu profi! Svo er lika enginn sma sleikjugangur her vid kennarana! Uff, hef aldrei a aevi minni sed annan eins sleikjugang (og tho sa madur nu nokkra goda i Kenno!). Fyrir profid voru t.d. allir ad bida fyrir utan stofuna, thar a medal kennarinn. Koma tha ekki einhverjar kellur, vinda ser ad kennaranum og segja "ohh my god, you look so good! You look just lika a student!" Eg bara gapti eins og apakottur og aeldi naestum kaffitimanum minum yfir lidid. Fuff, ef thetta er ekki sleikja tha skal eg hundur heita, voff!!!! Malid er vist ad med sleikjugangi naer madur haerri einkunn (ja einmitt what!). Einhver sagdi mer ad thad ad koma ser i mjukinn hja kennurum getur gert gaefumuninn i ad fa A- eda A+ ! Ekki mikil kennslufraedi i thvi!!! Og eg ad laera kennslufraedi hihihihi.
Ja stelpur svona er lifid her i Kanada. Alltaf uppgotvar madur eitthvad nytt! Annars aetla eg ad fara nuna a Dairy Queen, fa mer borgara og godan is i eftirrett!
Eg verd svo med ykkur i anda a kvennadeginum, verst ad eg verd eflaust sofandi kl.14:08!
Kvedja, Sigga Ros

21 október 2005

 

Berjumst gegn launamisrétti

Jú jú alltaf allt á fullu á þessum bæ. Hvernig gekk svo í prófinu Sigga mín? Yndisleg þessi aðferðafræði hehe.
Annars ætla ég að ljúka mínum vinnudegi kl. 14:08 og bruna með kellunum í bæinn á mánudag. Þýðir ekki annað en að berjast í þessu blessaða launamisrétti. Eruð þið ekki með?
Annars bara helgi og rólegheit framundan. Styttist alltaf í þetta langþráða vetrarfrí, bara fjórir vinnudagar eftir með þessum tryllta skríl í skólanum.
Bestu kveðjur
Kolla Vil

19 október 2005

 

Prof prof prof!!!

Saelar kennslukonur! Er ad bida eftir thvi ad fara i prof i adferdafraedi, ja adferdafraedi, munid thid eftir henni???? Pjuk pjuk og ael ael! Ekki er hun nu skemmtilegri a ensku kaeru konur! Fer i profid kl. half fimm, omurlegt ad bida allan daginn eftir tvi ad fara i ansans profid!!! Eg er alltaf svona seint i skolanum, fra half fimm til half atta a kvoldin!
Hvad er annars ad fretta af kennslukonunum? Snokt snokt eg er ekki kennslukona lengur, bara favis nemi!!! Eda hvad, einu sinni kennslukona, avallt kennslukona, er thad ekki fint maltaeki hehe!
Ae meiri fidringurinn sem madur er med i maganum nuna, greinilega er thessi kennslukona komin ur aefingu!!!
Kvedja Sigga rannsoknar-kennslukona!

10 október 2005

 

Þreyta hvað...?

Talandi um þreyttar kennslukonur og þreytta vöðva... Ég er búin að vera með sotla vöðvabólgu undanfarið, en ekkert alvarlegt svosem. Þangað til ég fór að sýna listir mínar í íþróttahúsinu hérna... Ég ætla nú ekki að fara að lýsa þessu atriði mínu, sem átti að verða alveg hreint ótrúlega glæsilegt en endaði í verstu magalendingu sögunnar, en eftir þetta ævintýri var ég svo stíf og stirð að ég gat ekki hreyft á mér hausinn í tvo daga. Á meðan ég var með hausinn fastan sá ég jóga auglýst. Ég ákvað að það væri fínt að skella sér í jóga, kannski minni líkur á að mér takist að festa á mér hausinn þar. Talaði við konuna í síma á miðvikudaginn og hún lýsti fyrir mér hvernig ég kæmist þangað í tíma á fimmtudag. Ég var með kort af Vík og horfði á það á meðan hún sagði mér að keyra svona 5 kílómetra út fyrir Vík, beygja svo inn afleggjarann hjá Hótel Höfðabrekku og lýsti þessu svo nánar fyrir mér. Allan tíman var ég að spá hvers vegna Hótel Höfðabrekka væri ekki merkt inn á kortið en ákvað að það væri svosem allt í lagi, ég myndi sjá skiltið þegar ég kæmi þangað. Svo rann upp fimmtudagur og ég keyrði út úr Vík, af stað í jóga. Eftir 5 kílómetra sá ég ekkert skilti, enn ekkert eftir 10 kílómetra og eftir 15 kílómetra var mér orðið ljóst að ég hafði keyrt öfugu megin út úr Vík...

09 október 2005

 

Threyttir vodvar!!!

Hae hae. Sit herna med eitthvad rosalegt hitakrem a oxlunum, alveg ad drepast ur vodvabolgu. Orugglega eftir allan lesturinn, alltaf eitthvad ad bogra!!!
Annars likar mer nu bara vel herna uti. Vedrid er natturulega bara snilld! 13-16 stiga hiti nuna, jafnvel i skyjudu vedri. Voda ljuft - ekkert rok og laeti her. Thad rignir samt mjog mikid a veturna en thad hefur nu ekki rignt mikid sidan vid komum - bara nokkrir rigningardagar.
Namid er bara fint nema ad eg tharf ad taka adferdafraedi- ojjjojjj ael ael. Ja og eg get alveg sagt ad adferdafraedin er engu skemmtilegri a ensku!!! Og nu tharf ad beita taekninni i ad greina rannsoknir!!! Eg get nu ekki sagt ad eg se mikill snilli i thessu, en eg reyni eins og eg get. Samt soldid fyndid hvad vid erum nu med olikt menntakerfi a Islandi. Eg var nu bara ordin mjog stolt um daginn af okkar einfalda menntakerfi. Engar logsoknir og vesen heima!!! Her er eg ad lesa um log og reglur og logsoknir fra foreldrum! Soldid skrytin upplifun.
Thad er Thanksgiving a manudaginn. Nagrannar okkar her vid hlidina budu okkur i Thanksgiving dinner a morgun. Faum kalkun og fineri og vid komum med eftirrettinn. Eg laet nu bara Betty vinkonu hjalpa mer i theim efnum, a ekki einu sinni hraerivel! Alltaf gott ad eiga vinkonu eins og Betty hihi.
Jaeja hafid thad gott threyttu kennslukonur og reynid svo ad taka i lurginn a lidinu hihi.
Kvedja fra Kanada. Sigga Ros

08 október 2005

 

Fréttir frá þreyttri kennslukonu

Gott að heyra að fleiri séu að komast inn í bloggheima, Gulla hvað með þig???
Er annars búin að hárreyta mig mikið yfir þessum gríslingum sem ég er að kenna. Gelgjan farin að gera vart við sig hjá mörgum þeirra og sumir ráða bara alls ekkert við hana. Sífellt nöldur og tuð og allt að verða vitlaust. Er bara endalaust þreytt eftir vinnudaginn og veit bara ekkert hvernig þetta endar. Bíð með óþreyju eftir vetrarfríi í enda mánaðarins, þá reynir maður að hlaða batteríin sem verða að endast fram að jólafríi.
Kennslan er þó ekki alslæm þar sem ég kenni líka slatta af myndmennt sem bjargar yfirleitt deginum.
Hvernig gengur annars hjá ykkur?

Kveðja
Kolla Vil

 

Eg er maett a svaedid!

Vildi bara lata vita ad eg er maett a svaedid.
Kvedja Sigga Ros

05 október 2005

 

Til hamingju með daginn!

Já stelpur, það er alþjóðlegur dagur kennara í dag! Til hamingju með það!
Hér í sveitinni hjá okkur Kollu var haldið upp á daginn með viðhöfn. Öllum kennurunum var boðið í mat og þegar við mættum voru skólaliðarnir og skólastjórinn uppstrílaðar í hvítum skyrtum og með bindi og óskuðu okkur til hamingju með daginn. Svo var skálað í freyðivíni áður en þær báru á borð þennan líka dýrindis mat handa okkur. Við hvern disk var brandari og lítil gjöf, ekki amalegt það! Á eftir var svo boðið upp á kaffi og súkkulaði. Svo í lokin, af því að kennarastarfið getur verið erfitt og við erum kannski svolítið svartsýn á köflum, þá fengum við öll bjartsýnisgleraugu svo við getum nú séð heiminn í nýju ljósi. Ansi skemmtilegt bara og ekki amalegt þegar það er hugsað svona vel um mann!
En þið hinar, gerðuð þið eitthvað í tilefni dagsins?

This page is powered by Blogger. Isn't yours?