08 október 2005
Fréttir frá þreyttri kennslukonu
Gott að heyra að fleiri séu að komast inn í bloggheima, Gulla hvað með þig???
Er annars búin að hárreyta mig mikið yfir þessum gríslingum sem ég er að kenna. Gelgjan farin að gera vart við sig hjá mörgum þeirra og sumir ráða bara alls ekkert við hana. Sífellt nöldur og tuð og allt að verða vitlaust. Er bara endalaust þreytt eftir vinnudaginn og veit bara ekkert hvernig þetta endar. Bíð með óþreyju eftir vetrarfríi í enda mánaðarins, þá reynir maður að hlaða batteríin sem verða að endast fram að jólafríi.
Kennslan er þó ekki alslæm þar sem ég kenni líka slatta af myndmennt sem bjargar yfirleitt deginum.
Hvernig gengur annars hjá ykkur?
Kveðja
Kolla Vil