28 mars 2006
Náttúra og listir!
Var að labba í skólann í dag og á vegi mínum var ansi kunnugleg sýn! Ég var sem sagt að labba í rólegheitunum þegar ég sé allt í einu mikinn gróður á gangstéttinni sem greinilega var búið að raða á einhvern listrænan hátt. Nokkrum skrefum lengra sé ég nokkrar stelpur í beði vera að raða ýmsum náttúruefnum á listrænan hátt! Ein var t.d. að búa til hringi úr greinum á gangstéttina og inni þeim var listrænn köngull! Verð að viðurkenna að þessi sýn minnti mig ansi mikið á náttúrulistaverkin okkar sem við gerðum í samfélagsfræði og listir kúrsinum forðum daga!!!! Verð að viðurkenna að þetta leit ansi nördalega út :)
Kv. Sigga listaspíra
Kv. Sigga listaspíra
21 mars 2006
Forvitni borgar sig ekki....eða hvað?
Greinilega verið fjör í sveitinni í síðasta hitting hehe. Sé þetta með háaloftið alveg fyrir mér hahahahahahaha. En bíddu nú við, allir með eitthvað á prjónunum.......er þetta myndlíking fyrir að allar séu með einhver skemmtileg plön í aðsigi eða.......bara allar svona myndarlegar :)
Já forvitnin getur leikið mann grátt þegar maður er staddur í fjarlægum löndum hehe.
Kveðja, SRS
Já forvitnin getur leikið mann grátt þegar maður er staddur í fjarlægum löndum hehe.
Kveðja, SRS
17 mars 2006
Læri læri tækifæri!
Já maður kannast nú við þetta Kolla hehe. Var einmitt í gærkvöldi með eina svaðalegustu kynningu sem ég hef nokkurn tíma á ævi minni haldið! Þriggja tíma kynning, takk fyrir um intervention studies í math disabilities! Úff þetta tók á, munnurinn skrælnaði og kennarinn reyndi að grilla mann eins og pylsu á teini en ég náði að forðast bruna og þetta gekk bara ótrúlega vel :) En gott að þetta er búið......nú tekur næsta við! Stutt eftir af skólanum, aðeins 3 vikur........sem þýðir glás af verkefnum framundan....en engin próf! Já þeir kunna þetta hér í kennslufræðinni.
Heyrðu, svo viljum við Dóra Hanna fá umræður Víkurhittingsins hér inn :)
Kv. Sigga Rós
Heyrðu, svo viljum við Dóra Hanna fá umræður Víkurhittingsins hér inn :)
Kv. Sigga Rós