28 mars 2006
Náttúra og listir!
Var að labba í skólann í dag og á vegi mínum var ansi kunnugleg sýn! Ég var sem sagt að labba í rólegheitunum þegar ég sé allt í einu mikinn gróður á gangstéttinni sem greinilega var búið að raða á einhvern listrænan hátt. Nokkrum skrefum lengra sé ég nokkrar stelpur í beði vera að raða ýmsum náttúruefnum á listrænan hátt! Ein var t.d. að búa til hringi úr greinum á gangstéttina og inni þeim var listrænn köngull! Verð að viðurkenna að þessi sýn minnti mig ansi mikið á náttúrulistaverkin okkar sem við gerðum í samfélagsfræði og listir kúrsinum forðum daga!!!! Verð að viðurkenna að þetta leit ansi nördalega út :)
Kv. Sigga listaspíra
Kv. Sigga listaspíra