05 október 2005

 

Til hamingju með daginn!

Já stelpur, það er alþjóðlegur dagur kennara í dag! Til hamingju með það!
Hér í sveitinni hjá okkur Kollu var haldið upp á daginn með viðhöfn. Öllum kennurunum var boðið í mat og þegar við mættum voru skólaliðarnir og skólastjórinn uppstrílaðar í hvítum skyrtum og með bindi og óskuðu okkur til hamingju með daginn. Svo var skálað í freyðivíni áður en þær báru á borð þennan líka dýrindis mat handa okkur. Við hvern disk var brandari og lítil gjöf, ekki amalegt það! Á eftir var svo boðið upp á kaffi og súkkulaði. Svo í lokin, af því að kennarastarfið getur verið erfitt og við erum kannski svolítið svartsýn á köflum, þá fengum við öll bjartsýnisgleraugu svo við getum nú séð heiminn í nýju ljósi. Ansi skemmtilegt bara og ekki amalegt þegar það er hugsað svona vel um mann!
En þið hinar, gerðuð þið eitthvað í tilefni dagsins?

Comments: Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?