20 febrúar 2007

 

Liggja kennslukonur í vetrardvala......

eða hvað? Tja, þegar stórt er spurt er fátt um svör :)

Ákvað að henda hér inn færslu til að sanna tilvist mína og að ég ligg ekki í vetrardvala....meira svona rigningardvala hehe ;)

Hitti Sigrúnu á flugvellinum þegar ég var á leið út eftir átmikið jólafrí á Fróni, skemmtileg tilviljun það :) Því miður náði ég ekki að spjalla mikið við hana þar sem ég þurfti auðvitað að troða mér í check in röðina áður en hallærislegir Ameríkanarnir fylltu röðina ;)

Nú fer að líða að vori og senn líður að námslokum. Er á fullu að undirbúa mína mestu kynningu fyrr og síðar....kynning á því sem ég lærði í náminu fyrir framan alla prófessora deildarinnar og samnemendur, gúlp!!! En eftir það er þessu nánast lokið. Eitt og annað hefur maður lært, sumt nýtt en annað gamalt.....sumt bara gamalt á nýjum grunni hehe ;)

Útskrift í lok maí....mín deild auðvitað á besta tíma dags, klukkan hálfníu um morgun!!! Ohh svo indælt. Eftir það er það bara Ísland, fagra Ísland og elskulegt íslenskt skólakerfi. Líst ekki alveg á stöðuna í kjaramálum kennara...les ályktanir kennara hér og þar og virðist stefna í launabaráttu og deilu...vona svo sannarlega að það leysist nú sem fyrst :)

Skora ég nú á kennslukonur að svipta sig vetrarhamnum og rísa úr dvalanum :)
Kv. Sigga Rós

P.S. Kolla, hvaða leyndó er þetta eiginlega...maður situr spenntur og fær engin svör ;)

Comments: Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?