28 september 2006

 

Fréttayfirlit

Sælar lömbin mín!
Verður maður ekki að setja hér inn smá orð, svona rétt til að halda síðunni gangandi hehe.
Allt gott að frétta af mér héðan. Skólinn á fullu með sínum indælisverkefnum, ljúfum lestri og ritgerðaskilum. Samt er þetta nú öðruvísi núna því ég er með endinn í nánd. Get nánast séð í rassinn á lokum námsins sem og í tærnar skuldadögum námslána jæks!!! En annars er þetta bara nokkuð spennandi, margt nýtt og fróðlegt og líka margt sem er nýtt en ekki svo fróðlegt hehe. Þið vitið hvernig þetta er, ekki satt ;)
En hvernig gengur hjá ykkur hinum. Hvernig gengur í námi, leik og störfum?
Hlakka til að hitta ykkur um jólin, er með þörf fyrir íslenskar kennslukonur....þessar kanadísku eru fullmikið fyrir mig hihihihi.
Kveða, Sigga Rós

Comments: Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?