15 maí 2006
Komin heim!
Jæja skvísur, þá er maður komin heim.....svaka ljúft en samt sem áður hálf undarlegt eitthvað!!!
Maður klessir sér utaní fjölskylduna í tíma og ótíma, kreistir lítil kríli, fer í veislur og hvað eina. Nú er undirbúningur brúðkaupsins okkar í fullum gangi, nóg að snúast og allir hrikalega spenntir :) Jónsmessan, 24.júní verður vonandi sólríkur og skemmtilegur dagur. Ég hlakka svakalega til, en við förum síðan aftur út viku eftir fjörið þann 2.júlí. Skólinn byrjar aftur hjá mér þann 4.júlí, er að taka eitt stykki sumarönn. Mun líka vera að vinna í einum kúrsi meðan ég er hér heima, í nokkurs konar fjar-einanámi! Gerði sjálf verkefnalýsingu og er svo í sambandi við kennarann minn. Ætla að skrifa ritgerð um mikilvægi early identification varðandi lestrarerfiðleika ungra barna og tengja það við Ísland, hvað er verið að gera á Íslandi, Læsisskimanirnar ofl. Gæti orðið skemmtilegt viðfangsefni enda ákkúrat á mínu áhugasviði.
Vonandi náum við að hittast í hittingi fljótlega, hlakka til að sjá ykkur allar :)
Kv. Sigga Rós

Comments:
<< Home
Velkomin heim...datt í hug að þú værir að fara að gifta þig skvísa þegar ég las um tollsvindlið, hehe.
Gangi ykkur vel í brúðkaupsundirbúningnum ;-)
Skrifa ummæli