28 febrúar 2006
Vor?
Ja, eða ekki. Veðrið er reyndar yndislegt, fyrir utan þá litlu staðreynd að hitastigið er ekki nema kannski -5 gráður...
Hér er alltaf nóg að gera, og meira en nóg fyrir aumingja eins og mig... Já, mér finnst ég, á köflum, vera algjör aumingi og gærkvöldið var nú ekki til að bæta úr því... Ég var semsagt veik meira og minna fyrstu vikur ársins, lagðist alltaf aftur og aftur og um miðjan febrúar var ég búin með tvo pensilínkúra. Ég er núna mun hressari en ég var en er samt enn með einhvern skít í hálsinum og frekar orkulaus, sem þýðir það að ég kemst ekki yfir að gera allt sem ég hefði viljað gera. Svo er ég búin að vera að reyna að druslast í leikfimina (er reyndar búin að missa alltof marga tíma úr) og fór í einn svoleiðis tíma í gær. Það fór ekki betur en svo að í lok tímans var ég við það að líða útaf, kríthvít í framan skrönglaðist ég fram til að fá mér sæti og keyra höfuðið ofan í gólf. Svona er nú orkubúskapurinn lítilfjörlegur á mínum bæ þessa dagana.
Annars hef ég svosem ekki setið alveg auðum höndum þessar orkulausu vikur... Ég er búin að ná mér í sumarvinnu í bænum, vinnu sem mig virkilega langar til að vinna! Og til að halda upp á það er ég líka búin að kaupa mér ferð til London í páskafríinu! Hlakka ekki lítið til...