24 febrúar 2006

 

Vor vor vor!

Já það er sko farið að vora hérna í Kanada. Vorlaukar farnir að spretta upp úr jörðinni og það er hætt að rigna svona ferlega mikið! Var eiginlega að verða geðveik á þessari miklu rigningu dag eftir dag. Já Kolla mín, því miður á ég engin skemmtileg atriðið í pokahorninu......er einmitt oft í þessum sömu vandræðum og lendi frekar í því að gera óvart eitthvað spaugilegt!!! En svona er það nú, ég get stundum verið seinheppin eins og þið vitið ;)
Annars er nú skólinn hálfnaður....sem er mjög gott! Ég er í einum virkilega góðum kúrsi núna en hinir kúrsarnir mínir eru frekar mikil froða! En þessi góði kúrs er fullur af svona Kindergarten kennurum, við erum að skiptast á hugmyndum og læra margar nýjar aðferðir. Rosa finn kúrs og ég hamast við að taka niður glósur. Hlakka til að komast í tæri við nemendur og reyna allt þetta skemmtilega sem ég er búin að læra.
Annars var ég líka að spá í einu. Hér er skriffinska í hávegum höfð og sem sagt allt í skólum snýst mikið um skriffinsku vesen. En ég var að velta fyrir mér greiningum á ymsum erfiðleikum, t.d. bara lestrarerfiðleikum. Hérna úti fær barn ekki aðstoð nema það taki eitthvað staðlað próf, síðan er því skellt í IQ test (til að mæla gáfurnar) og svo er fundinn einhver mismunur þarna á og ef barnið er einhverjum ákveðnum staðalfrávikum undir meðaltalinu þá er það greint með Learning disabilities. En þetta er mjög asnalegt finnst mér, t.d. eru reglurnar ekki eins eftir fylkjum. Sem sagt gæti barn sem býr í Alberta fylki átt rétt á aðstoð en ef það er svo óheppið að flytja til BC þá fær það kannski ekkert!!! Undarlegt. Einnig gæti líka krakki sem er með mjög háa IQ en les t.d. á meðalhraða, reiknast út í að vera með learning disabilities og hann er samt kannski gifted learner!!!!!! Úff skil nú litið í þessu. Skil ekki þessa áráttu að vera alltaf að testa IQ! Verst að ég veit ekki alveg nógu vel hvernig þessu er háttað heima. Hélt að þær notuðu meira allskonar kannanir, málþroskapróf og þess háttar við greiningar á þessu. Ég held því fram að við leggjum ekki svona mikla áherslu á IQ......vona að ég sé ekki að segja neina vitleysu með það......hvað segir aðstoðarskólastjórinn við þessu :)
Jæja komið nóg af rausi í mér, þarf að fara að skrifa summary!
Kv. SRS

Comments: Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?