25 janúar 2006

 

Æsispennandi umræður!!!!

Hæ hæ. Verður maður ekki að taka þátt í þessum æsispennandi umræðum sem eru í gangi hérna mjéhjéhjéhjé......smá skot svona hehe.
Annars er skólinn kominn á fullt skrið hjá mér, er í einum virkilega skemmtilegum kúrs sem fjallar um læsi í Kindergarten og fyrstu bekkjunum.....hann er alveg frábær og ég er komin með fullt af hugmyndum í safnið mitt, hlakka til að fara að kenna aftur 6 ára gríslingum og prófa allar þessar hugmyndir sem eru settar hér á borð fyrir mann hehe. Kennarinn minn er líka voða spenntur yfir því hvernig þetta eigi eftir að virka með mínum nemendum á Íslandi! Kennarinn minnir mig nú bara ansi mikið á hana Rannveigu okkar.......afskaplega notaleg gömul kona sem kennir þetta og hún er alveg yndisleg og vill allt fyrir mann gera. Annað en sumir prófessorarnir hérna sem eru nú hálf myglaðir eitthvað og alltaf með nefið ofan í rannsóknarpappírum.....ég fíla þá ekki eins vel.
En vonandi hafið þið það gott skvísur.
Kv. Sigga Rós

Comments: Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?