09 janúar 2006

 

Gleðilegt ár!

Já þá er hversdegið komið aftur í gang. Held bara að mínir elskulegu upprennandi skjólstæðingar hafi bara haft gott af jólafríinu. Ég verð samt að viðurkenna að ég hefði alveg getað verið lengur í fríi. En svona er þetta maður verður víst að vinna fyrir kaupinu sínu.

En ég hafði það alveg ofsalega gott yfir hátíðarnar, brá mér á ansi skemmtilegt ball daginn fyrir gamlárs og þakkaði mínum sæla að hafa ákveðið að fara í mat til ma og pa á gamlárs. Mín var ekki alveg í standi til að bjástra yfir pottunum, en það lagaðist samt þegar líða tók á kvöldið.

Vonandi hafið þið haft það jafngott og ég dúllurnar mínar.

Kveðja Kolla Vil

Comments: Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?