22 nóvember 2005

 

Jólarí

Hér á bæ er jólakortagerð starfsmanna í dag. Skrapp til Kollu í gærkvöldi til að misnota aðstöðu hennar (handþeytara og bökunarofn), og skellti í þessar líka dásamlegu súkkulaðibitasmákökur sem ég ætla að traktera liðið á í dag. Er nokkuð viss um að með þeim toppi ég pönnukökurnar sem ég töfraði fram handa þeim um daginn... Annars bara allt fínt að frétta, prjónaði reyndar yfir mig um helgina (var með doðatilfinningu í vinstri höndinni í skuggalega langan tíma)...

Comments: Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?