08 nóvember 2005
Þessar elskur...
Ég er eins og undin tuska eftir daginn í dag, úr mér allur vindur. Ég gat nú samt ekki annað en brosað áðan og verð barasta að deila ástæðunni með ykkur. Var að fara yfir verkefnabækur og á einni síðunni átti að svara spurningum um það hver kemur til hjálpar í hinum ýmsu tilfellum. Ein spurningin var um það hver kæmi til hjálpar þegar við erum svöng. Einn svaraði: Þá förum við til ömmu. Svo einfalt er nú það...
