16 nóvember 2005

 

Alveg sprellalæf

Jú jú ég er enn á lífi þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir nemenda minna að ganga fram af mér. Alltaf þegar ég held að ég sé að ná tökum á þessu öllu saman brýst eitthvað vandamál upp á yfirborðið og ég ligg i símanum það sem eftir lifir dags og hringi í foreldra og reyni að lagfæra vandamálin. Finnst ég vera orðin meiri sálfræðingur en kennari enda fara flestir mínir umsjónartímar í að leysa vandamál og vera með uppeldisfræði og kurteisisnámskeið. Já kannski ég breyti bara nafninu á lífsleiknitímunum í "kennslu í almennri kurteisi". Ætti kannski að setja á laggirnar svona hlýðniskóla.
Ég þykist allavega nokkuð viss um það að börnin mín fengu aldrei nokkurn tímann að komast upp með slíka hegðun eins og mörg börn eru í dag. Já núna er ég bara orðin pirruð á að skrifa um þessa gemlinga mína svo ég ætla að hætta í bili.

Skildi samt ekki alveg öll þessi skilaboð frá Gullu, erum við að fara að hittast eða sló hún því aðeins á frest????

Comments:
Hord, Kolla hord!!! Ekkert ad lata thessa grislinga komast upp med neitt mudur hehe.
 
Já takk fyrir það, hef lúmskt gaman af því að berja þau niður hehe.
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?