25 október 2005

 

Í tilefni dagsins... í gær...

Ég fékk ansi skemmtilegan póst í gær, læt hann flakka hér...

Nú skulum við standa saman!

Ásamt því að sækja um launahækkun eru íslenskar konur hvattar til að:

* Sofa yfir sig.
* Fara í sömu nærföt og í gær.
* Pissa á setuna - og útfyrir, ef tími vinnst til.
* Mála sig ekki - og alls ekki raka.
* Mæta of seint í vinnuna - sparka í stimpilklukkuna.
* Fara strax í kaffi - kvarta yfir því að það sé
a) of kalt b) of sterkt c) of svart.
* Prumpa.
* Reyna við undirmennina - eða bara klípa þá í tippið.
* Fara of snemma heim - biðja næturvörðinn að stimpla sig út.
* Flauta á alla karla í umferðinni og senda þeim fingurinn -
eða ulla.
* Gleyma að sækja börnin á leikskólann.
* Setjast fyrir framan sjónvarpið um leið og komið er heim.
* Fá sér bjór.
* Urra - jafnvel bíta - ef einhver spyr eftir kvöldmat.
* Ropa.
* Sofna yfir Idol.
* Fá sér bjór.
* Leggjast í öllum fötunum í rúmið og helst strá yfir það brauð- eða
kexmylsnu.
* Sofna áður en makinn nær að bursta tennurnar.
* Hrjóta.


Já, og samkvæmt þessu þá mótmæli ég kröftuglega á hverjum degi!

Comments:
hahahahahahaha......
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?