10 október 2005

 

Þreyta hvað...?

Talandi um þreyttar kennslukonur og þreytta vöðva... Ég er búin að vera með sotla vöðvabólgu undanfarið, en ekkert alvarlegt svosem. Þangað til ég fór að sýna listir mínar í íþróttahúsinu hérna... Ég ætla nú ekki að fara að lýsa þessu atriði mínu, sem átti að verða alveg hreint ótrúlega glæsilegt en endaði í verstu magalendingu sögunnar, en eftir þetta ævintýri var ég svo stíf og stirð að ég gat ekki hreyft á mér hausinn í tvo daga. Á meðan ég var með hausinn fastan sá ég jóga auglýst. Ég ákvað að það væri fínt að skella sér í jóga, kannski minni líkur á að mér takist að festa á mér hausinn þar. Talaði við konuna í síma á miðvikudaginn og hún lýsti fyrir mér hvernig ég kæmist þangað í tíma á fimmtudag. Ég var með kort af Vík og horfði á það á meðan hún sagði mér að keyra svona 5 kílómetra út fyrir Vík, beygja svo inn afleggjarann hjá Hótel Höfðabrekku og lýsti þessu svo nánar fyrir mér. Allan tíman var ég að spá hvers vegna Hótel Höfðabrekka væri ekki merkt inn á kortið en ákvað að það væri svosem allt í lagi, ég myndi sjá skiltið þegar ég kæmi þangað. Svo rann upp fimmtudagur og ég keyrði út úr Vík, af stað í jóga. Eftir 5 kílómetra sá ég ekkert skilti, enn ekkert eftir 10 kílómetra og eftir 15 kílómetra var mér orðið ljóst að ég hafði keyrt öfugu megin út úr Vík...

Comments:
Gerði aðra tilraun í gær, komst á leiðarenda í það skiptið... Komst reyndar að því í leiðinni að ég er í enn verra formi en ég hélt...
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?